Akureyri Madison Sutton átti frábæran leik gegn Keflvíkingum í gær.
Akureyri Madison Sutton átti frábæran leik gegn Keflvíkingum í gær. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Nýliðar Þórs frá Akureyri gerðu sér lítið fyrir og sigruðu topplið Keflavíkur, 87:83, í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik á Akureyri í gær. Keflavíkurliðið hafði unnið átta fyrstu leiki sína á tímabilinu

Nýliðar Þórs frá Akureyri gerðu sér lítið fyrir og sigruðu topplið Keflavíkur, 87:83, í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik á Akureyri í gær. Keflavíkurliðið hafði unnið átta fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Þór náði góðri forystu í fyrri hálfleik en staðan var 54:36 að honum loknum. Keflavík náði góðum spretti í þriðja leikhluta, eftir hann stóð 64:58, en Akureyringar stóðust frekari áhlaup og sigurinn var ekki í teljandi hættu undir lokin.

Madison Sutton átti stórleik hjá Þór en hún var með 26 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar. Jovanka Ljubetic skoraði 17 stig og tók 9 fráköst og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir skoraði 12 stig.

Daniela Wallen skoraði 19 stig fyrir Keflavík og tók 13 fráköst. Elisa Pinzan skoraði 17 stig og Birna Valgerður Benónýsdóttir var með 15 stig og 7 fráköst.

Keflavík er samt með tveggja stiga forystu í deildinni eftir níu umferðir.