Þorlákshöfn José Medina er genginn til liðs við Þór frá Hamri.
Þorlákshöfn José Medina er genginn til liðs við Þór frá Hamri. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Körfuknattleikskappinn José Medina er genginn til liðs við Þór úr Þorlákshöfn en hann kemur til félagsins frá Hamri í Hveragerði. Þetta tilkynntu Þórsarar á samfélagsmiðlum sínum en hann skoraði 12 stig, tók tvö fráköst og gaf sex stoðsendingar að…

Körfuknattleikskappinn José Medina er genginn til liðs við Þór úr Þorlákshöfn en hann kemur til félagsins frá Hamri í Hveragerði.

Þetta tilkynntu Þórsarar á samfélagsmiðlum sínum en hann skoraði 12 stig, tók tvö fráköst og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í sex leikjum með Hamri í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Þórsarar eru í fjórða sæti deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu átta umferðirnar en Hamar situr á botninum án stiga.