Ákæra hefur verið gefin út á hendur karlmanni sem grunaður er um hrottalegt ofbeldi gagnvart fyrrverandi kærustu sinni í skóglendi í ágúst. Farið var fram á að gæsluvarðhald yfir honum yrði framlengt um fjórar vikur í gær.
Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði sem birtur var í síðasta mánuði mátti lesa óhugnanlegar lýsingar á ofbeldi mannsins gegn konunni, en fyrir tilviljun átti gangandi vegfarandi leið um og kallaði til ofbeldismannsins, sem lét sig þá hverfa. Maðurinn er grunaður um að hafa ráðist að konunni og ítrekað lamið og sparkað í hana, að hafa reynt að kyrkja konuna og haldið henni með kyrkingartaki þar sem hún var með höfuðið undir vatni í nærliggjandi læk. Konan var nefbeins- og andlitsbrotin eftir árásina, með opin sár á höfði og marga marbletti á höfði, hálsi og víðar um líkamann.