Svartur á leik
Svartur á leik
Staðan kom upp í hraðskákhluta öflugs móts sem lauk fyrir skömmu í St. Louis í Bandaríkjunum. Víetnaminn Liem Le Quang (2.665) hafði svart gegn heimamanninum Fabiano Caruana (2.813)

Staðan kom upp í hraðskákhluta öflugs móts sem lauk fyrir skömmu í St. Louis í Bandaríkjunum. Víetnaminn Liem Le Quang (2.665) hafði svart gegn heimamanninum Fabiano Caruana (2.813). 53. … d3! 54. Rg5+ Kd4 55. Rxf7 Kc3! hvítur getur ekki stoppað frípeð svarts á d-línunni með góðu móti. 56. Rd6 d2 57. Re4+ Kd3 58. Rxd2 Kxd2 59. Kf3 Kc3 60. Kf4 Kxb4 61. Kg5 Ka5 62. Kxh5 b4 og hvítur gafst upp. Chess After Dark heldur Íslandsmótið í Fischer-slembiskák árið 2023 í samstarfi við Green Diamond International. Miðvikudaginn 29. nóvember fara fram undanrásir þar sem leikar hefjast kl. 19.30 á skákþjóninum chess.com. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 10+5. Tíu efstu á mótinu tryggja sér þátttökurétt í úrslitum Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák en þau fara fram 1. og 2. desember, sjá nánar á skak.is.