Sprunga Unnið er að því að gera við lagnirnar í stóru sprungunni, sem liggur í gegnum vesturhluta Grindavíkurbæjar, áður en hægt verður að laga veginn.
Sprunga Unnið er að því að gera við lagnirnar í stóru sprungunni, sem liggur í gegnum vesturhluta Grindavíkurbæjar, áður en hægt verður að laga veginn.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Atvinnulífið í Grindavík er hægt og rólega að fara af stað. Unnið er að því að laga lagnir og fylla í sprungur, sem einhverjar eru þó svo djúpar að ferja þarf fleiri tonn af möl og sandi í þær til að þær fyllist

Atvinnulífið í Grindavík er hægt og rólega að fara af stað. Unnið er að því að laga lagnir og fylla í sprungur, sem einhverjar eru þó svo djúpar að ferja þarf fleiri tonn af möl og sandi í þær til að þær fyllist.

Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar lögðu leið sína um bæinn í gær í fylgd björgunarsveitarmanna. Ráðherrarnir voru sammála um mikilvægi þess að fara á staðinn til að upp­lifa aðstæður í Grinda­vík og öðlast þannig betri skiln­ing á stöðunni.

Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, fylgdi ráðherrunum um bæinn. Hann segir dagana skemmtilegri eftir að aðgangur íbúa og fyrirtækja að bænum var rýmkaður, þrátt fyrir að hlutverk björgunarsveitarinnar á staðnum hafi ekki breyst mikið samhliða því. Það sé ávallt verið að endurmeta stöðuna, kortleggja sprungur, fylgjast með breytingum og fara yfir bæinn. Björgunarsveitarmenn munu áfram taka þátt í því, enda vel kunnugir staðháttum, segir hann. klaraosk@mbl.is » 2 og 4