Hættur Ole Martin Nesselquist hefur látið af störfum hjá KR.
Hættur Ole Martin Nesselquist hefur látið af störfum hjá KR. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Ole Martin Nesselquist hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Ole Martin, sem er þrítugur, var ráðinn aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR fyrir síðasta keppnistímabil

Ole Martin Nesselquist hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Ole Martin, sem er þrítugur, var ráðinn aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR fyrir síðasta keppnistímabil.

Í tilkynningu KR-inga kemur meðal annars fram að Ole Martin hafi óskað eftir því að láta af störfum til þess að taka við ónefndu félagi í heimalandi sínu Noregi.