Sex sundmenn verða fulltrúar Íslands á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Otopeni í Rúmeníu dagana 5.-10. desember. Anton Sveinn McKee keppir bringusundi, Birnir Freyr Hálfdánarson keppir í fjórsundi og þeir Einar Margeir…
Sex sundmenn verða fulltrúar Íslands á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Otopeni í Rúmeníu dagana 5.-10. desember. Anton Sveinn McKee keppir bringusundi, Birnir Freyr Hálfdánarson keppir í fjórsundi og þeir Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson keppa í bringusundi. Þá keppir Snæfríður Sól Jórunnardóttir í skriðsundi og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir keppir í skriðsundi sem og flugsundi.