Markaðsdagur á Eiðistorgi.
Markaðsdagur á Eiðistorgi.
Jólamarkaður verður á Eiðistorgi á laugardaginn, 2. desember, frá kl. 10 til 16. Markaðsdagar hafa verið á torginu nokkrum sinnum ári en að framtakinu standa Íris Gústafsdóttir, sem rekur hársnyrtistofu á Eiðistorgi, og dóttir hennar, Alexandra

Jólamarkaður verður á Eiðistorgi á laugardaginn, 2. desember, frá kl. 10 til 16. Markaðsdagar hafa verið á torginu nokkrum sinnum ári en að framtakinu standa Íris Gústafsdóttir, sem rekur hársnyrtistofu á Eiðistorgi, og dóttir hennar, Alexandra.

Jólasveinar mæta á svæðið, sem og Elsa drottning sem spjallar við börnin. Jólalögin verða sungin og ýmsar veitingar í boði, eins og crepes-pönnukökur, candy­floss og kökur. Hagkaup býður öllum gestum upp á heitt súkkulaði og kaffi.