40 ára Arna er fædd á Ísafirði en ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hún hefur búið í Kópavogi síðan 2006. Arna er með atvinnuflugmannspróf frá Oxford Aviation, diplóma í flugrekstrarfræði frá Tækniskólanum og er flugmaður hjá Icelandair. Hún er varamaður í stjórn Eftirlaunasjóðs flugmanna. Áhugamálin eru ferðalög og fjölskyldan.
Fjölskylda Eiginmaður Örnu er Viggó M. Sigurðsson, f. 1976, verkefnastjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar. Börn þeirra eru Sigurður Vopni, f. 2010, Bára Rán, f. 2011, Huginn, f. 2017, og Óðinn, f. 2020. Foreldrar Örnu eru hjónin Bára Elíasdóttir, f. 1965, kennari í Vogaskóla, og Óskar Ármannsson, f. 1964, stjórnandi þróunar og rekstrar hjá Reiknistofu lífeyrissjóða. Þau eru búsett í Reykjavík.