Miðbakki
Miðbakki
Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Miðbakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík í dag, laugardaginn 2. desember, klukkan 17. Allir eru velkomnir. Á heimasíðu Faxaflóahafna segir frá því að íslenskir sjómenn, sem komu í höfn í…

Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Miðbakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík í dag, laugardaginn 2. desember, klukkan 17. Allir eru velkomnir.

Á heimasíðu Faxaflóahafna segir frá því að íslenskir sjómenn, sem komu í höfn í Hamborg eftir seinna stríð, elduðu fiskisúpu handa svöngu fólki meðan landað var úr togara þeirra. Sem þakklætisvotti komu hafnaryfirvöld í Hamborg á þeirri hefð árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur það við höfnina yfir hátíðirnar. Ekki er lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi vegna umhverfissjónarmiða, og hafa Faxaflóahafnir þess vegna keypt tré hjá Skógræktinni í seinni tíð. Þetta er í 58. skipti sem jólatré er sett upp.

Dagskráin hefst á því að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna býður gesti velkomna. Sverrir Schopka segir frá sögu Hamborgartrésins og sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvegneau, tendrar ljósin. Loks koma jólasveinar siglandi á dráttarbátnum Magna sem leggst upp að Miðbakkanum. Þeir munu spjalla við börnin og síðan leiða gesti að nýju húsi Landsbankans í Reykjastræti 6, þar sem útgerðarfyrirtækið Brim býður upp á fiskisúpu. sisi@mbl.is