Ömurleg staða Pakkasöfnunin fer mun verr af stað í ár en áður.
Ömurleg staða Pakkasöfnunin fer mun verr af stað í ár en áður. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Pakkasöfnun Kringlunnar fer mun hægar af stað en undanfarin ár. Beiðnum fjölskyldna um aðstoð fyrir jólin hefur á sama tíma fjölgað mikið. Segist Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, hafa verulegar áhyggjur af stöðunni, en við…

Pakkasöfnun Kringlunnar fer mun hægar af stað en undanfarin ár. Beiðnum fjölskyldna um aðstoð fyrir jólin hefur á sama tíma fjölgað mikið. Segist Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, hafa verulegar áhyggjur af stöðunni, en við
jólatréð í Kringlunni er tekið
við pökkum til barna á Íslandi sem búa við erfiðar aðstæður. Einnig er hægt að styrkja söfnunina á netinu með framlagi á kringlan.is.

„Hún fer alveg hræðilega af stað. Við vorum að ræða það síðast í morgun [í gærmorgun] hvað við gætum gert til að ýta þessu betur af stað. Nú er söfnunin búin að vera í viku og þetta eru í rauninni bara örfáar gjafir – en samt gjafir, við erum þakklát fyrir allt sem kemur,“ segir hún. » 4