Karlmaður sem lést í vinnuslysi í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag hét Ólafur Pétursson Hermannsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Ólafur fæddist árið 1961 og var búsettur í Garði
Karlmaður sem lést í vinnuslysi í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag hét Ólafur Pétursson Hermannsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Ólafur fæddist árið 1961 og var búsettur í Garði. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvo syni.
Slysið varð við Fitjabraut í Ytri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði í samtali við mbl.is fyrir helgi að rannsókn á tildrögum slyssins stæði enn yfir en henni miðaði vel.