Höfundar Mikil ánægja ríkir meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna árið 2024.
Höfundar Mikil ánægja ríkir meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna árið 2024. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna og kvára í ár. Dómnefndir tilnefndu bækur í þremur flokkum, þ.e. fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og unglingabókmenntir og fagurbókmenntir

Silja Björk Huldudóttir

silja@mbl.is

Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna og kvára í ár. Dómnefndir tilnefndu bækur í þremur flokkum, þ.e. fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og unglingabókmenntir og fagurbókmenntir.

Fræðibækur og rit almenns eðlis

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar bækurnar: Kynlegt stríð, ástandið í nýju ljósi eftir Báru Baldursdóttur sem Bjartur gefur út; Með verkum handanna: Íslenskur refilsaumur fyrri alda eftir Elsu E. Guðjónsson sem Þjóðminjasafn Íslands gefur út, ritstjóri Lilja Árnadóttir og Andlit til sýnis: Íslendingar og aðrir á Kanarísafninu eftir Kristínu Loftsdóttur sem Sögufélagið gefur út.

Dómnefnd skipuðu Hulda Steingrímsdóttir, Sigrún Birna Björnsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir.

Í umsögn dómnefndar um bók Báru segir að Kynlegt stríð dragi fram „nöturlegar staðreyndir ástandsins svonefnda; persónunjósnir, niðurlægingu og ofbeldi gagnvart þeim konum sem talið var að væru í tygjum við hermenn. Stuðst er við áður ónýttar heimildir og tímabilið brotið til mergjar. Hér er drusluskömm skilað til föðurhúsa og gerð viðeigandi skil á afar aðgengilegan, skipulagðan og skýran hátt.“

Um Með verkum handanna segir: „Líkt og umfjöllunarefnið er bókin fögur, kaflarnir yfirgripsmiklir, aðgengilegir lesendum og vekja áhuga á rannsóknarefninu. Þá er framsetning ritstjóra bókarinnar áhrifamikil en greinum fræðimanna er ofið inn í heildartextann á hátt sem undirstrikar áhrif ævistarfs Elsu E. Guðjónsson á alþjóðlegan fræðaheim.“

Um Andlit til sýnis segir að Kristín leiði „okkur um grimmilega sögu kynþáttahyggju á upplýsandi og áhugaverðan hátt. Sjónahorn frásagnarinnar gefur lesandanum nýja sýn á aldagamalt valdakerfi og teflir fram raunverulegum persónum sem viðfangi vísinda. Hið persónulega verður pólitískt. Bókin byggist á umfangsmikilli rannsóknarvinnu, er afar vönduð, ríkulega myndskreytt og á erindi við alla fróðleiksfúsa.“

Barna- og unglingabókmenntir

Í flokki barna- og unglingabókmennta eru tilnefndar bækurnar: Hrím eftir Hildi Knútsdóttur sem Forlagið – JPV útgáfa gefur út; Ég þori! Ég get! Ég vil! eftir Lindu Ólafsdóttur sem Forlagið – Mál og menning gefur út og Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina eftir Margréti Tryggvadóttur sem Forlagið – Iðunn gefur út.

Dómnefnd skipuðu Brynja Helgu Baldursdóttir, Guðlaug Richter og Helga Birgisdóttir.

Í umsögn dómnefndar um bók Hildar segir: „Hrím er fantasía sem gerist á kunnuglegu en þó framandi Íslandi og er saga um náttúruna, manneskjurnar, ástina og örlögin sem aldrei eru vís. Á hugvitssamlegan og næman hátt segir Hildur sögu Jófríðar, unglingsstúlku sem tekst á við áskoranir unglingsáranna ásamt því að þurfa að axla óbærilega þunga ábyrgð þegar framtíð fólksins hennar hvílir skyndilega á henni. Hrím er hörkuspennandi og stundum ógnvekjandi skáldsaga sem ómögulegt er að leggja frá sér.“

Um bók Lindu segir: „Sagan er sögð með heillandi og merkingarþrungnum myndum og texta þar sem móðir rifjar upp og dóttir spyr spurninga. Frásögn af kvennafrídeginum 1975 kallast á við 24. október þessa árs og sýnir að enn þarf að berjast. Fallegt verk með skemmtilegum myndum og stuttum, hnitmiðuðum texta sem bæði uppfræðir og skemmtir.“

Um Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina segir að þar fjalli „Margrét um listafólkið sem lagði grunn að íslenskri listasögu. Að auki greinir hún í stuttu máli frá ýmsum aðferðum sem notaðar eru við listsköpun. Bókin er einstaklega vel unnin, umbrotið vandað, myndirnar vel valdar og textinn á fallegu máli. Hér er á ferðinni sannkallað listaverk sem er um leið mjög fróðlegt og vekur áhuga á listum.“

Fagurbókmenntir

Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar bækurnar Fegurðin í flæðinu eftir Ester Hilmarsdóttur sem Bókaútgáfan Sæmundur gefur út, Móðurást: Oddný eftir Kristínu Ómarsdóttur sem Benedikt bókaútgáfa gefur út og Ævintýrið eftir Vigdísi Grímsdóttur sem Benedikt bókaútgáfa gefur út.

Dómnefnd skipuðu Jóna Guðbjörg Torfadóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir.

Í umsögn dómnefndar um Fegurðin í flæðinu segir: „Ljóðin hverfast öll um blæðingar leghafa og nálgast þær á afar hugvitssamlegan hátt. Þau geyma gjarnan óvænt líkingamál og myndrænar lýsingar á þessari mánaðarlegu egglosun sem ýmist vekur skömm, létti eða sár vonbrigði. Auk þessa prýða bókina teikningar sem hæfa mjög efninu. Þar eru dregnar upp útlínur kvenlíkamans með einföldum en áhrifaríkum hætti þar sem eini liturinn er rautt, vatnslitað blóðið.“

Um bók Móðurást: Oddný segir: „Kristín segir hér skáldaða sögu langömmu sinnar, Oddnýjar Þorleifsdóttur. Hún elst upp í stórum systkinahópi í uppsveitum Árnessýslu um miðja nítjándu öldina og segir söguna frá sjónarhóli barnsins. Lífið er sannarlega ekki auðvelt hjá fjölskyldunni en bókin er uppfull af húmor og gefur lesandanum nýja og ferska sýn á fortíðina. Sorgir og dauðinn eru eilíflega nærri en lífið er stærra og meira. Ákaflega fallegur og ljúfsár texti sem færir okkur nær formæðrum okkar.“

Um Ævintýrið segir: „Með aðferðum ævintýrisins segir Vigdís okkur sögu um vináttu drengs og fisks sem getur breytt sér í manneskju (fisklyktin leynir sér þó ekki). Drengirnir leiða okkur um samfélag fátæktar, kúgunar, ofbeldis og einræðis. Hér er ekki allt sem sýnist því sagan er hápólitísk í umfjöllun sinni um börn sem búa í ógnarsamfélagi. Hún kallast á við nútíma okkar þar sem þúsundir barna búa við hörmulegar aðstæður. Texti Vigdísar er heillandi um leið og hann spyr áleitinna spurninga.“