Norður
♠ ÁKG105
♥ Á764
♦ 73
♣ 98
Vestur
♠ 83
♥ D102
♦ DG10
♣ ÁG432
Austur
♠ D762
♥ 853
♦ 964
♣ K107
Suður
♠ 94
♥ KG9
♦ ÁK852
♣ D65
Suður spilar 3G.
„Hvað varð um fjórða hæsta í lengsta lit?“ Magnús mörgæs var að horfa á úrslitaleik Soloway-bikarsins um síðustu helgi og var ekki stórhrifinn. Útspil í laufi jarðar 3G á augabragði en báðir vesturspilarar komu út með tíguldrottningu.
Sagnir voru samhljóða: 1♠-2♣ (gervisögn og geimkrafa), 2♥-2G og 3G. Sagnhafarnir tveir tóku tíguldrottningu fengins hendi með ás og svínuðu í spaða. Austur átti slaginn og skipti yfir í lauftíu – drottning og ás.
„Þannig að spilið fór niður, þrátt fyrir allt?“ lagði Óskar ugla til málanna.
„Öðrum megin, já. En Jacek Kalita skipti yfir í hjartatvist og gaf spilið. Veðjaði á hjartakóng hjá makker frekar en laufkóng. Kannski ekki órökrétt í stöðunni en vandamálið kviknar aldrei með eðlilegu laufútspili.“