Ljóst er að mikil vinna er fyrir höndum í Grindavík við að lagfæra innviði. Þar efst á blaði er lagnakerfið sem verður að vera í lagi áður en Grindvíkingar geta snúið aftur heim.
Hin ýmsu tæki og tól eru notuð til verksins en vandasamt getur þó verið að komast að stærstu skemmdunum.
Ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferðinni í Grindavík í gær en bærinn er opinn frá klukkan sjö á morgnana til klukkan fimm síðdegis.
Jarðskjálftavirkni hefur verið mjög svipuð milli daga við kvikuganginn. Á bilinu 200 til 300 skjálftar hafa mælst við hann á hverjum sólarhring. Flestir skjálftanna eru undir tveimur að stærð og eru upptök þeirra í grennd við Hagafell. Eru þeir að meðaltali á um fimm kílómetra dýpi.
Veður var með besta móti í Grindavík í gær og útlit er fyrir að veður til lagnaframkvæmda verði áfram gott í vikunni.