Breyting Rafbílar verða dýrari.
Breyting Rafbílar verða dýrari. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bílaumboðsins Öskju, segir að verið sé að hægja á orkuskiptum samgangna með niðurfellingu virðisaukaskattsívilnunar á rafbíla um áramótin. „Það liggur fyrir og kemur mér mjög á óvart

Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bílaumboðsins Öskju, segir að verið sé að hægja á orkuskiptum samgangna með niðurfellingu virðisaukaskattsívilnunar á rafbíla um áramótin. „Það liggur fyrir og kemur mér mjög á óvart. Kemur líka mjög á óvart að stjórnvöld ætli að skattleggja rafbíla meira en dísil- og bensínbíla sem uppfylla sömu þarfir.“ Varðandi bílaleigur segist Jón Trausti engar forsendur sjá fyrir að þær muni koma sterkar inn í rafbílakaup næsta árs. „Bílarnir eru einfaldlega of dýrir og henta ekki í bílaleigustarfsemi enn sem komið er,“ segir Jón Trausti. » ViðskiptaMogginn