Vladímír Pútín Rússlandsforseti mun heimsækja Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin í dag. Talsmaður Rússlandsstjórnar segir að til umræðu í heimsókninni verði heimsmálin og olíumarkaðurinn meðal annars
Vladímír Pútín Rússlandsforseti mun heimsækja Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin í dag. Talsmaður Rússlandsstjórnar segir að til umræðu í heimsókninni verði heimsmálin og olíumarkaðurinn meðal annars.
Ekki kom fram hvort Pútín ætli að sækja viðburði tengda COP28-ráðstefnunni sem fer fram um þessar mundir í furstadæmunum.