Hitchcock John Dall, Farley Granger og Stewart í Rope frá árinu 1948.
Hitchcock John Dall, Farley Granger og Stewart í Rope frá árinu 1948.
Svefn- og hugleiðslu-appið Calm býður áskrifendum sínum upp á lestur leikarans James Stewarts á kvöldsögunni „It’s a Wonderful Sleep Story“. Stewart var einn dáðasti leikari Hollywood á 5., 6. og 7. áratug síðustu aldar og lék í stórmyndum á borð…

Svefn- og hugleiðslu-appið Calm býður áskrifendum sínum upp á lestur leikarans James Stewarts á kvöldsögunni „It’s a Wonderful Sleep Story“. Stewart var einn dáðasti leikari Hollywood á 5., 6. og 7. áratug síðustu aldar og lék í stórmyndum á borð við It's a Wonderful Life, Vertigo og Rear Window. Er hér reyndar um að ræða svokallaða raddklónunartækni því Stewart sem lést árið 1997 las aldrei téða sögu sem var skrifuð áratugum eftir dauða leikarans, af starfsliði Calm. Fjölskylda Stewarts lagði blessun sína yfir upplesturinn og haft er eftir dóttur hans að það veiti henni mikla gleði að vita af því að fólk fái að njóta raddar og raddblæs föður síns yfir jólahátíðina.