Ásta Fjeldsted forstjóri Festi segir nauðsynlegt að nýta tæknina.
Ásta Fjeldsted forstjóri Festi segir nauðsynlegt að nýta tæknina. — Morgunblaðið/Eggert
Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, segir að það séu ekki einungis tækifæri fólgin í því að innleiða tæknilausnir í rekstri smávöluverslana heldur sé það beinlínis nauðsynlegt. Launakostnaður sé stór kostnaðarliður í rekstrinum og verði sífellt fyrirferðarmeiri

Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, segir að það séu ekki einungis tækifæri fólgin í því að innleiða tæknilausnir í rekstri smávöluverslana heldur sé það beinlínis nauðsynlegt. Launakostnaður sé stór kostnaðarliður í rekstrinum og verði sífellt fyrirferðarmeiri.

„Eftir síðustu kjaraviðræður jókst launakostnaður sem dæmi hjá Krónunni um 13 prósent. Kollegar mínir á Norðurlöndunum horfa á þessa þróun hjá íslenskum smásöluaðilum og hrista bara hausinn. Þeir skilja ekki hvernig við getum mætt þessu,“ segir Ásta í viðtali við ViðskiptaMoggann í dag.

Kjaraviðræður eru fram undan og Ásta segir að huga þurfi að mörgu við samningaborið. Ekki megi skella skuldinni eins og svo oft er gert á álagningu fyrirtækja. Nýleg skýrsla Seðlabankans hafi einmitt sýnt að álagning innlendra fyrirtækja hafi hlutfallslega haft lítil áhrif á aukningu verðbólgu í fyrra. Hún gagnrýnir sömuleiðis framgöngu hins opinbera.

„Það er óhjákvæmlegt annað en að beina spjótum sínum að hinu opinbera sem að mínu mati er í harðri samkeppni við einkageirann um starfsfólk á ýmsum sviðum. Hið opinbera hefur verið leiðandi í launahækkunum, og ekki bara í launum heldur kjarabótum ýmiss konar, aukafrídögum og fleiru, sem einkageirinn á erfitt með að keppa við. Grunnforsenda efnahagslegs stöðugleika er að einkageirinn leiði þessa þróun því það er einkageirinn sem drífur áfram framleiðnivöxtinn sem þarf til að launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti.“