Svíþjóð Jóhannes Karl Guðjónsson er líklega á förum frá KSÍ.
Svíþjóð Jóhannes Karl Guðjónsson er líklega á förum frá KSÍ. — Morgunblaðið/Eggert
Flest bendir til þess að Jóhannes Karl Guðjónsson láti af starfi aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins í fótbolta en í það minnsta tvö sænsk félög hafa áhuga á að fá hann sem þjálfara. Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ,…

Flest bendir til þess að Jóhannes Karl Guðjónsson láti af starfi aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins í fótbolta en í það minnsta tvö sænsk félög hafa áhuga á að fá hann sem þjálfara. Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, staðfesti við Morgunblaðið að KSÍ hefði gefið honum leyfi til að fara í viðræður í Svíþjóð. Jóhannes kemur til greina sem þjálfari hjá úrvalsdeildarliði Norrköping og hjá B-deildarliðinu Öster.