Grikkinn Giannis Antetokounmpo skoraði hvorki fleiri né færri en 64 stig í nótt og setti með því félagsmet hjá Milwaukee Bucks þegar liðið vann Indiana Pacers, 140:126, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt
Grikkinn Giannis Antetokounmpo skoraði hvorki fleiri né færri en 64 stig í nótt og setti með því félagsmet hjá Milwaukee Bucks þegar liðið vann Indiana Pacers, 140:126, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Fyrra metið átti Michael Redd sem skoraði 57 stig í leik með liðinu árið 2006. Giannis tók jafnframt 14 fráköst í leiknum en hann spilaði í 37 mínútur af 48. Milwaukee er í öðru sæti Austurdeildar NBA, á eftir Boston Celtics, með 17 sigra í 24 leikjum.