Aðstoðarþjálfari Kjartan mun aðstoða Heimi Guðjónsson þjálfara.
Aðstoðarþjálfari Kjartan mun aðstoða Heimi Guðjónsson þjálfara. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs FH, þar sem hann lék á síðasta tímabili. Í tilkynningu frá félaginu í gær kom ekki fram hvort Kjartan yrði spilandi aðstoðarþjálfari eða myndi leggja skóna á …

Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs FH, þar sem hann lék á síðasta tímabili. Í tilkynningu frá félaginu í gær kom ekki fram hvort Kjartan yrði spilandi aðstoðarþjálfari eða myndi leggja skóna á hilluna og einbeita sér alfarið að þjálfun, en leikmannasamningur hans er runninn út. Kjartan, sem er 37 ára gamall, gekk til liðs við FH fyrir síðasta tímabil og skoraði 11 mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni.