Fleirtalan hringar er yfirleitt höfð um skartgripi, t.d. um gullhringa, hringir aftur um aðra hringi, t.d. kleinuhringi, segir í Beygingarlýsingu og hún bætir við: „Þessi notkun er á dálitlu reiki.“ Sumum finnst fínna að flugvél hniti…

Fleirtalan hringar er yfirleitt höfð um skartgripi, t.d. um gullhringa, hringir aftur um aðra hringi, t.d. kleinuhringi, segir í Beygingarlýsingu og hún bætir við: „Þessi notkun er á dálitlu reiki.“ Sumum finnst fínna að flugvél hniti hringa yfir flugvelli: fari í hringi. Það er enda skáldlegra. Engir kleinuhringir þar.