Söngkonan Margrét Eir heldur sína árlegu jólatónleika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á föstudagskvöld, 22. desember, kl. 20. „Þetta verður kvöld til að hverfa frá amstri hversdagsins og ströngum undirbúningi jólanna og njóta fallegrar tónlistar og afslöppunar,“ segir um tónleikana í tilkynningu

Söngkonan Margrét Eir heldur sína árlegu jólatónleika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á föstudagskvöld, 22. desember, kl. 20. „Þetta verður kvöld til að hverfa frá amstri hversdagsins og ströngum undirbúningi jólanna og njóta fallegrar tónlistar og afslöppunar,“ segir um tónleikana í tilkynningu. „Falleg aðventustemning verður í fyrirrúmi á einstaklega hugljúfum tónleikum.“ Með Margréti leika þeir Börkur Hrafn Birgisson, Þorgrímur Jónsson og Agnar Már Magnússon.