Eitt verka Odee.
Eitt verka Odee.
Síðasti sýningardagur sýningarinnar Cognitive Collage eftir listamanninn Odee, í Gallerí Fold, er í dag, 20. desember. Opið er milli kl. 12 og 18. „Undanfarin ár hefur Odee vakið athygli fyrir beinskeytta nálgun á samspil einstaklinga og afla á…

Síðasti sýningardagur sýningarinnar Cognitive Collage eftir listamanninn Odee, í Gallerí Fold, er í dag, 20. desember. Opið er milli kl. 12 og 18.

„Undanfarin ár hefur Odee vakið athygli fyrir beinskeytta nálgun á samspil einstaklinga og afla á markaði með gjörningum og myndverkum. Með lokaverkefni sínu við Listaháskóla Íslands nú í vor vakti hann þjóðarathygli þegar hann ögraði sjálfstæði stórfyrirtækisins Samherja sem starfar á alþjóðamarkaði,“ segir m.a. í tilkynningu.