Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson er á óskalista sænsku úrvalsdeildarfélaganna Häcken og Hammarby en það er danski miðillinn Tipsbladet sem greinir frá þessu
Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson er á óskalista sænsku úrvalsdeildarfélaganna Häcken og Hammarby en það er danski miðillinn Tipsbladet sem greinir frá þessu. Aron, sem er þrítugur, er samningsbundinn Horsens í dönsku B-deildinni en hann mun yfirgefa danska félagið þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Aron hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö til viðbótar í 18 leikjum Horsens á tímabilinu en liðið situr í 7. sæti deildarinnar.