Kópavogur Anton Logi Lúðvíksson gæti verið á leið til Haugesund.
Kópavogur Anton Logi Lúðvíksson gæti verið á leið til Haugesund. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Haugesund hafa lagt fram tilboð í Anton Loga Lúðvíksson miðjumann hjá Breiðabliki. Þetta staðfestir Karl Daníel Magnússon, deildarstjóri afreksstarfs knattspyrnudeildar Breiðabliks, í samtali við Morgunblaðið…

Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Haugesund hafa lagt fram tilboð í Anton Loga Lúðvíksson miðjumann hjá Breiðabliki. Þetta staðfestir Karl Daníel Magnússon, deildarstjóri afreksstarfs knattspyrnudeildar Breiðabliks, í samtali við Morgunblaðið en Anton, sem er tvítugur, á að baki 34 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað fjögur mörk. Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, stýrir Haugesund í dag.