Norður
♠ Á96
♥ D73
♦ ÁKDG
♣ G82
Vestur
♠ 432
♥ 4
♦ 92
♣ Á1097654
Austur
♠ K7
♥ Á9862
♦ 10864
♣ D3
Suður
♠ DG1085
♥ KG105
♦ 753
♣ K
Suður spilar 4♠.
Enginn fær Göltinn til að beygja sig skilyrðislaust undir lög og reglur. „Nauðsyn brýtur lög,“ segir hann og teiknar upp dæmi fyrir fuglana: Vestur opnar á 3♣, norður doblar, austur passar og suður stekkur í 4♠.
Út kemur hjarta, austur drepur með ás og suður reynir að grugga vatnið með gosanum. En sagnhafi platar engan og austur spilar auðvitað hjarta til baka í slag tvö. „En HVAÐA hjarta?“ spyr Gölturinn með þunga og svarar sjálfur að bragði:
„Þetta er klassísk hliðarkallsstaða. Austur vill að makker taki strax á laufásinn ef hann er til í búinu. En þar fyrir ætti austur alls ekki að spila hjartatvistinum til að kalla í laufi. Vestur mun þá spila undan laufásnum í þeirri von og trú að austur eigi kónginn. – Nei, hér köllum við grimmt í tígli með hjartaníunni og neitum laufkóngnum afdráttarlaust.“