Fjóla Ákadóttir fæddist 17. janúar 1940 í Brekku Djúpavogi. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 8. desember 2023.

Foreldrar hennar voru Áki Kristjánsson, f. 2. júlí 1890 í Brekku Djúpavogi, d. 1. september 1982, og Áslaug Jónsdóttir, f. 22. maí 1897 í Bæ, Stafafellssókn Lóni, d. 3. júní 1966. Systkini Fjólu, börn Áka og Áslaugar, voru þrettán og var hún næstyngst. Elstur var Rögnvaldur, f. 1914, d. 1946, Jóhanna Helga, f. 1915, d. 1986, Jón Vilhelm, f. 1917, d. 2007, Kristjana Þórey, f. 1919, d. 1992, Ottó, f. 1921, d. 2005, Þorbjörg, f. 1922, d. 2000, Vilborg, f. 1925, d. 2015, Guðrún Álfheiður, f. 1927, d. 2004, Pálína, f. 1930, d. 2022, Sigurrós Ingileif, f. 1932, d. 2021, Sigmar Bjarni, f. 1933, d. 2022, Erlingur, f. 1935, d. 1971, Hlífar, f. 1941.

Uppeldissystur Fjólu og systurdætur eru systurnar: Guðrún Elín, f. 1941, og Olga Óla, f. 1942, d. 2021, Bjarnadætur, dætur Jóhönnu Helgu, og Guðlaug Bára Ólafsdóttir, f. 1944, dóttir Þorbjargar.

Fjóla giftist 1960 í Berufjarðarkirkju Elísi Pétri Sigurðssyni (Ella P.), f. 19. mars 1930 í Gautavík á Berufjarðarströnd, d. 16. október 2019. Hann var sonur hjónanna Sigurðar Stefánssonar, f. 1888, d. 1963, frá Ósi í Breiðdal og Sigríðar Stefánsdóttur, f. 1896, d. 1978, frá Núpshjáleigu.

Börn Fjólu og Ella P. eru: 1) Áki, f. 15. febrúar 1958 d. 12. mars 1994, hann var kvæntur Bryndísi Karlsdóttur, búsett á Akureyri, eignuðust þau fjögur börn. 2) Andvana drengur, f. 1959. 3) Sigurður, f. 21. október 1960, býr á Breiðdalsvík með Jóhönnu Guðnadóttur og eiga þau tvö börn. 4) Áslaug, f. 14. ágúst 1964, gift Birni Hermannssyni, búsett í Reykjavík og eiga þau tvo syni. 5) Erla Vala, f. 26. apríl 1971, búsett í Danmörku og á tvö börn. 6) Stefanía Fjóla, f. 26. apríl 1971, á tvö börn og býr með Alejandro Gullien Mellado á Akureyri. 7) Ragna Valdís, f. 26. janúar 1979, á fjögur börn, býr á Akureyri og er í sambúð með Herberti Harðarsyni. 8) Elís Pétur, f. 2. apríl 1981, á þrjú börn og býr á Breiðdalsvík með Helgu Rakel Arnardóttur.

Barnabörn Fjólu og Ella eru nítján og barnabarnabörnin tuttugu og fjögur. Mikið ríkidæmi sem hún var ákaflega stolt af.

Fjóla ólst upp í Brekku á Djúpavogi hjá foreldrum sínum og systkinum. Hún fór sem kaupakona í Syðri-Grund, Höfðahverfi á unglingsaldri, síðar fór hún á Reykjalund og vann þar í eldhúsi aðeins 16 ára gömul. Hún vann með föður sínum í bræðslunni af elju samhliða því að syngja í kirkjukór Djúpavogskirkju. Eftir að hún flutti árið 1960 á Breiðdalsvík rak hún ásamt Ella útibú frá Olíuverslun Íslands BP, vann í kaupfélaginu á Breiðdalsvík í mörg ár og vann á haustin í sláturtíð. Samhliða þessu sinnti hún stóru og annasömu heimili þar sem meðal annars starfsmenn Ella voru oft á tíðum bæði í mat og heimili. Hún var virkur félagi í kvenfélaginu Hlíf og söng í kirkjukór Heydalakirkju.

Fjóla Ákadóttir verður jarðsungin frá Glerárkirkju í dag, 21. desember 2023, klukkan 13.

Elsku mamma mín. Þú hefur kennt mér svo margt, þó ég geti ekki leikið það allt eftir þá gafstu mér trú á að ég gæti svo margt. Þú stappaðir í mig stálinu þegar ég þurfti á að halda og hlúðir að því sem þér var unnt. Þú kenndir mér að láta engan vaða yfir mig. Þú varst óhrædd að segja skoðun þína þó þú hafir ekki verið gefin fyrir margmenni eða sviðsljósið, hrein og bein og umfram allt sterk kona sem hélst fjölskyldunni okkar saman, akkerið okkar og þú og pabbi kjölfestan okkar. Þú varst sönn og aldrei að þykjast. Fallegt heimilið umvafði okkur þegar við þurftum á að halda en þar var alltaf líf og fjör og opið öllum eins og vinum mínum sem elskuðu að vera á okkar heimili enda voru þau velkomin án skilyrða. Þú tókst öllum eins. Pabbi var vanur að segja þar sem er nóg hjartarúm þar er nóg pláss. Það kom svo oft í þinn hlut að taka á móti fólki. Heimilið okkar var sem töfrastaður prýtt fallega handverkinu þínu. Einstaklega natin við það sem þú tókst þér fyrir hendur og fagurkeri fram í fingurgóma. Heimilið var baðað í tónlist og góðum mat og bakkelsi. Ég elskaði afmælin sem þú hélst fyrir okkur með glæsilega skreyttum rjómatertum. Það léku öll verk í höndum þér. Þú varst alltaf til í að sauma á mig föt eða hekla handa mér tösku og lagðir þig alla fram til að verða við óskum mínum og framkvæma hugmyndir mínar. Þegar ég síðan bjó mér heimili saumaðir þú ótal gardínur fyrir mig og ég fékk að taka þátt. Þú kenndir mér að strekkja dúka, gera laufabrauð, baka, vanda mig, kenndir mér að hafa skynbragð á hvað væri vel uninn handavinna, hirða um þvott, skreyta og hafa ekki áhyggjur af hvað öðrum fyndist um mig. Þú gafst mér frelsi og umhyggju og umfram allt treystirðu mér. Við vorum miklar vinkonur og ég gat ekki af þér séð. Pabbi var vanur að segja brosandi að það hafi gleymst að klippa á naflastrenginn þegar ég fæddist. Þú studdir mig í því sem ég tók mér fyrir hendur, varst einstök amma barnanna minna sem elskuðu að heimsækja þig að ekki sé minnst á allar ferðirnar okkar um landið.

Sumarbústaðaferðir um landið að ógleymdum heimsóknum þínum til okkar þegar við bjuggum í Danmörku. Og í seinni tíð bíltúra og dagsrúnta með ísferðum sem við elskuðum öll. Ég fékk að vera með þér í sláturtíð og það var gott að koma við og kíkja á mömmu sína þegar þú vannst í kaupfélaginu. Þú kenndir mér að halda í hefðir og gildi eins og jólahefðir sem ég er stolt og þakklát fyrir að geta haldið í á mínu heimili. Þú leyfðir mér líka að taka þátt í því sem þú varst að ganga í gegnum á lífsleiðinn. Fegurð þín var innan sem utan og glæsileiki þinn fór ekki framhjá neinum, þú settir svip þinn hvar sem þú komst. Allt var myndarlegt í kringum þig. Ég elskaði að syngja með þér og hlusta á tónlist og það þurfti ekki mikið tilstand, nóg að vera bara heima enda voru plöturnar þínar þegar ég var að alast upp gullnáma. Návist þín og nærvera ógleymanleg.

Ég mun sakna þess að eiga jólastund með þér með heitu fjölskyldu kakóinu okkar með rjóma og smákökum og hnoðaðri brúntertu.

Elsku mamma mín þú munt alltaf vera í huga mér og hjarta. Þú ert stjarnan sem lýsir mér leið.

Til mömmu

Þú ert gull og gersemi

góða besta mamma mín.

Dyggðir þínar dásami

eilíflega dóttir þín.

Vandvirkni og vinnusemi

væntumþykja úr augum skín

Hugrekki og hugulsemi

og huggun þegar hún er brýn.

Þrautseigja og þolinmæði

- kostir sem að prýða þig.

Bjölluhlátur, birtuljómi,

barlóm, lætur eiga sig.

Trygglynd, trú, já algjört æði.

Takk fyrir að eiga mig.

(Anna Þóra 1963)

Þín dóttir

Ragna Valdís.