Knattspyrnukonan Ásdís Karen Halldórsdóttir gerði í gær tveggja ára samning við norska félagið Lillestrøm. Hún kemur þangað frá Íslandsmeisturum Vals. Ásdís hefur verið í stóru hlutverki hjá Val, sem er Íslandsmeistari síðustu þriggja ára
Knattspyrnukonan Ásdís Karen Halldórsdóttir gerði í gær tveggja ára samning við norska félagið Lillestrøm. Hún kemur þangað frá Íslandsmeisturum Vals. Ásdís hefur verið í stóru hlutverki hjá Val, sem er Íslandsmeistari síðustu þriggja ára. Ásdís hefur skorað 30 mörk í 139 leikjum í efstu deild með Val og KR. Lillestrøm hafnaði í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, fjórum stigum á eftir Noregsmeisturum Vålerenga.