Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Mótið fer fram í Marrakech í Marokkó um þessar mundir. Guðrún lék fjóra hringi á samanlagt átta höggum yfir pari og endaði í 104
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Mótið fer fram í Marrakech í Marokkó um þessar mundir. Guðrún lék fjóra hringi á samanlagt átta höggum yfir pari og endaði í 104. sæti. Ragnhildur lék hringina á 14 höggum yfir pari og endaði í 130. sæti. Voru þær töluvert frá sínu besta og töluvert frá því að fara í gegnum niðurskurðinn en miðað var við eitt högg yfir pari.