Norður
♠ 653
♥ 92
♦ KG984
♣ KD8
Vestur
♠ 98742
♥ D75
♦ 732
♣ 62
Austur
♠ Á10
♥ K3
♦ Á1065
♣ G10974
Suður
♠ KDG
♥ ÁG10864
♦ D
♣ Á53
Suður spilar 4♥.
Gölturinn viðurkennir fúslega að reglur komi sér oft vel í vörninni. „En það er með varnarreglur eins og aðrar mannanna reglur – þær eru leiðbeinandi, ekki bindandi. Og það má passa sig á að oftúlka ekki afköst makkers. Stundum er hann bara að henda af sér.“
Suður opnar á 1♥ og stekkur í 3♥ við grandsvari norðurs, sem hækkar í geim. Vestur kemur út með spaðaníu, austur drepur og spilar meiri spaða.
„Setjum okkur í spor vesturs,“ segir Gölturinn. „Hann getur valið um fjögur spil til að setja í síðari spaðann og strangt tekið ætti hvert einasta spil að hafa einhverja merkingu. En það er hæpið að vestur hugsi svo djúpt og mínir makkerar láta tvistinn í slaginn – lægsta spilið – án þess að meina eitt eða neitt. Ég túlka því tvistinn ekki sem kall í laufi og spila litlu trompi eftir að hafa drepið á tígulás. Laufásinn er sannaður í suður.“