Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður braut persónuverndarlög með því að birta myndir úr lögregluskýrslu sem fólu í sér persónuupplýsingar um Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur. Í úrskurði Persónuverndar er Sigurði gert að fjarlægja af Facebook-síðu sinni myndir…

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður braut persónuverndarlög með því að birta myndir úr lögregluskýrslu sem fólu í sér persónuupplýsingar um Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur. Í úrskurði Persónuverndar er Sigurði gert að fjarlægja af Facebook-síðu sinni myndir af gögnum lögreglunnar og bréf er varða sakamál sem Þórhildur Gyða var aðili að. Staðfesting þessa þarf að birtast fyrir 15. janúar nk. Í viðtali hjá RÚV árið 2021 lýsti hún ofbeldi af hálfu Kolbeins Sigþórssonar knattspyrnumanns. Hún kærði Kolbein en málið féll niður er hann greiddi miskabætur og játaði sök.