Knattspyrnudeild Víkings í Reykjavík hefur hafnað tilboði sænska félagsins Norrköping í þjálfarann Arnar Gunnlaugsson. Þá hafa Víkingar slitið…
Knattspyrnudeild Víkings í Reykjavík hefur hafnað tilboði sænska félagsins Norrköping í þjálfarann Arnar Gunnlaugsson. Þá hafa Víkingar slitið viðræðum við sænska félagið en þetta kemur fram á heimasíðu Víkings. Þar segir að eftir viðræður síðustu daga hafi komið í ljós að félögunum bæri töluvert á milli. Arnar hefur stýrt Víkingum frá árinu 2018 og gert liðið tvívegis að Íslandsmeisturum og fjórum sinnum að bikarmeisturum.