Astley heilsar upp á Vilhjálm prins á dögunum.
Astley heilsar upp á Vilhjálm prins á dögunum. — AFP/Aaron Chown
Jól Breski hjartaknúsarinn Rick Astley ætlar að verja jólunum í Danmörku að þessu sinni sem sætir svo sem engum stórkostlegum tíðindum í ljósi þess að eiginkona hans, kvikmyndaframleiðandinn Lene Bausager, er dönsk og einkadóttir þeirra býr þar

Jól Breski hjartaknúsarinn Rick Astley ætlar að verja jólunum í Danmörku að þessu sinni sem sætir svo sem engum stórkostlegum tíðindum í ljósi þess að eiginkona hans, kvikmyndaframleiðandinn Lene Bausager, er dönsk og einkadóttir þeirra býr þar. Þetta upplýsir söngvarinn, sem gerði garðinn frægan í áttunni, í samtali við Independent. Hann kveðst kunna vel við danskar jólahefðir, svo sem að opna pakkana á aðfangadagskvöld. Þá sé mikið lagt upp úr mat og drykk sem henti honum prýðilega. Gera eigi vel við sig á jólum.