Jóhann Gunnarsson fæddist 15. apríl 1948. Hann lést 10. desember 2023. Útför fór fram 20. desember 2023.
Minning um
bróður
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý,
því burt varst þú kallaður á örskammri stundu
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða,
svo fallegur, einlægur
og hlýr.
En örlög þín ráðin –
mig setur hljóða,
við hittumst samt aftur á ný.
Megi algóður guð þína
sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum,
græða djúp sár.
Þó kominn sért yfir í
aðra heima
mun minning þín lifa
um ókomin ár.
(Höf. ók.)
Þínar systur,
Guðrún Bríet, Kolbrún og Hrefna og fjölskyldur.