Í þessari viku eigið þið að leysa dulmál. Lausnina skrifið þið niður á blað og sendið inn fyrir 7. janúar. Þá eigið þið möguleika á að vinna bókina Fyrstu tölurnar – Lærum með Bangsímon og Fyrstu sögurnar mínar – Snar og Snöggur fara á skíði.
Munið að láta fylgja með upplýsingar um nafn, aldur og heimilisfang.
Þið getið sent lausnina á netfangið barnabladid@mbl.is eða sent bréf með pósti á Morgunblaðið – Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Fyrir tveimur vikum áttuð þið að leysa myndagátu og var rétt svar
jólasveinn. Dregið var úr réttum lausnum og fá hinir heppnu bókina
Syrpa – Fyrsti skyldingurinn í verðlaun.
Lovísa
Elmarsdóttir
13 ára
Kristján Árni
Júlíusson
9 ára
Styrmir Pétur
Steinþórsson
11 ára
Rúnar Ingi
Brynjarsson
10 ára
Fjölnir
Bjarkason
10 ára