Ungverjaland Janus Daði Smárason er samningsbundinn Magdeburg.
Ungverjaland Janus Daði Smárason er samningsbundinn Magdeburg. — Morgunblaðið/Eggert
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handknattleik, gengur til liðs við ungverska stórliðið Pick Szeged í sumar. Þetta segir þýski fjölmiðillinn Bild á vefsíðu sinni, samkvæmt sínum heimildum, en Janus hefur verið í stóru hlutverki hjá Evrópumeisturum Magdeburg í vetur

Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handknattleik, gengur til liðs við ungverska stórliðið Pick Szeged í sumar. Þetta segir þýski fjölmiðillinn Bild á vefsíðu sinni, samkvæmt sínum heimildum, en Janus hefur verið í stóru hlutverki hjá Evrópumeisturum Magdeburg í vetur. Hann var fenginn frá Kolstad í Noregi í sumar til þess að leysa Gísla Þorgeir Kristjánsson af hólmi á meðan hann væri að jafna sig eftir aðgerð á öxl sem hann gekkst undir í sumar.