Kobra Paige vill hjálpa öðrum.
Kobra Paige vill hjálpa öðrum. — AFP/Tom Szczerbowski
Von Kobra Paige, söngkona kanadíska málmbandsins Kobra and the Lotus, tileinkar Thank You, fyrsta lagið af væntanlegri sólóplötu sinni, öllum þeim sem ganga eða gengið hafa um dimman dal. „Sjálf hef ég brotlent andlega, oftar en einu sinni, en hafði …

Von Kobra Paige, söngkona kanadíska málmbandsins Kobra and the Lotus, tileinkar Thank You, fyrsta lagið af væntanlegri sólóplötu sinni, öllum þeim sem ganga eða gengið hafa um dimman dal. „Sjálf hef ég brotlent andlega, oftar en einu sinni, en hafði betur í baráttunni vegna þess stuðnings, ástar og hlýju sem ég fékk frá öðrum. Ég get staðfest að góðmennska getur breytt og jafnvel bjargað mannslífi. Þess vegna gef ég þetta lag út núna vegna þess að ég veit að þessi árstími er mörgum erfiður og vona að þetta geti reynst ljóstíra gegnum svartasta myrkrið,“ hefur málmgagnið Blabbermouth.net eftir Paige.