Drónar Suranne Jones er snúin aftur sem skoski rannsóknarlögreglumaðurinn Amy Silva í annarri þáttaröð BBC-glæpaflokksins Vigil. Síðast rannsakaði hún morð um borð í kafbáti en nú eru það dauðsföll í herstöð sem kalla á athygli hennar en þau virðast tengjast drónaárásum
Drónar Suranne Jones er snúin aftur sem skoski rannsóknarlögreglumaðurinn Amy Silva í annarri þáttaröð BBC-glæpaflokksins Vigil. Síðast rannsakaði hún morð um borð í kafbáti en nú eru það dauðsföll í herstöð sem kalla á athygli hennar en þau virðast tengjast drónaárásum. Svo þarf hún vitaskuld að huga að ástamálum sínum líka. Romola Garai og Dougray Scott leika einnig í seríunni.