Hannah Waddingham átti gott ár.
Hannah Waddingham átti gott ár. — AFP/Daniel Leal
Vinsældir „Hver hætti við?“ var það fyrsta sem breska leik- og söngkonan Hannah Waddingham spurði þegar henni var boðið að kynna Júróvisjón í Liverpool síðasta vor. Sjálf mátti Waddingham, sem er 49 ára, dúsa lengi í forsælunni í bresku…

Vinsældir „Hver hætti við?“ var það fyrsta sem breska leik- og söngkonan Hannah Waddingham spurði þegar henni var boðið að kynna Júróvisjón í Liverpool síðasta vor. Sjálf mátti Waddingham, sem er 49 ára, dúsa lengi í forsælunni í bresku listalífi og var greinilega ekki enn búin að meðtaka það að hún væri orðin stjarna þegar Júrókallið kom. Það var öðru fremur gamanmyndaflokkurinn Ted Lasso sem vakti athygli á Waddingham og eftir Júróvisjón veit hvert mannsbarn hver hún er, eða því sem næst. „Þetta ár hefur fært mér ótrúlegar minningar,“ segir hún við The Guardian. „Gæti ég spólað aftur til einhvers hluta ársins þá væri það Júróvisjón-vikan.“