Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við enska B-deildarfélagið Blackburn. Arnór, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við Blackburn á láni frá CSKA Moskvu í Rússlandi síðasta sumar

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við enska B-deildarfélagið Blackburn. Arnór, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við Blackburn á láni frá CSKA Moskvu í Rússlandi síðasta sumar. Hann skrifaði undir eins árs lánssamning við félagið til að byrja með en nýr samningur hans við félagið gildir út tímabilið 2024-25. Arnór hefur skorað fjögur mörk í 14 leikjum í B-deildinni á tímabilinu og 5 mörk í 16 leikjum alls.