Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi vegna banaslyss sem varð á Snæfellsnesvegi 17. júlí síðastliðinn. Í slysinu rákust saman húsbíll og jepplingur. Var maðurinn einnig sviptur ökuréttindum í hálft ár
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi vegna banaslyss sem varð á Snæfellsnesvegi 17. júlí síðastliðinn. Í slysinu rákust saman húsbíll og jepplingur. Var maðurinn einnig sviptur ökuréttindum í hálft ár.
Maðurinn ók bifreið sinni skammt norðan við Hítará „án nægilegs tillits og varúðar“ og var hann ófær um að stjórna ökutækinu örugglega vegna þreytu. Slysið varð þegar ekið var í veg fyrir annan bíl.