Knattspyrnumaðurinn Adam Árni Róbertsson, sem var fyrirliði Þróttar í Vogum á síðasta tímabili, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík. Adam, sem er sóknarmaður, skoraði 13 mörk í 20 leikjum með Þrótti í 2
Knattspyrnumaðurinn Adam Árni Róbertsson, sem var fyrirliði Þróttar í Vogum á síðasta tímabili, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík. Adam, sem er sóknarmaður, skoraði 13 mörk í 20 leikjum með Þrótti í 2. deildinni á síðustu leiktíð.
Adam Árni hefur spilað 51 leik í efstu deild með Keflavík og skorað í þeim fimm mörk. Einnig á hann að baki 34 leiki í næstefstu deild með Keflavíkurliðinu þar sem hann skoraði 14 mörk.