Slóvenski handknattleiksmaðurinn Blaz Janc leikmaður Barcelona verður ekki með landsliði þjóðar sinnar á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi í janúar

Slóvenski handknattleiksmaðurinn Blaz Janc leikmaður Barcelona verður ekki með landsliði þjóðar sinnar á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi í janúar.

Janc glímir við meiðsli og verður ekki klár í slaginn þegar mótið fer af stað í byrjun næsta árs. Hefur hann leikið með Barcelona frá árinu 2019 og er í lykilhlutverki hjá slóvenska landsliðinu.

Slóvenía er í D-riðli með Færeyjum, Noregi og Póllandi á Evrópumótinu. Fyrsti leikur liðsins er gegn Færeyjum 11. janúar, en riðillinn fer fram í Berlín.