Knattspyrnuþjálfarinn Davíð Smári Lamude verður áfram með karlalið Vestra næstu tvö árin en hann skrifaði undir nýjan samning til ársins 2025 um jólin. Davíð Smári tók við Vestra fyrir síðasta tímabil og kom Ísfirðingum upp í efstu deild í fyrstu tilraun í gegnum umspilið
Knattspyrnuþjálfarinn Davíð Smári Lamude verður áfram með karlalið Vestra næstu tvö árin en hann skrifaði undir nýjan samning til ársins 2025 um jólin. Davíð Smári tók við Vestra fyrir síðasta tímabil og kom Ísfirðingum upp í efstu deild í fyrstu tilraun í gegnum umspilið. Þar vann Vestri 1:0-sigur á Aftureldingu í úrslitum á Laugardalsvelli. Fyrir það stýrði Davíð Kórdrengjum í fimm ár og kom þeim upp um þrjár deildir.