„Mér líður mjög vel. Ég er mjög spenntur fyrir næsta tímabili. Elliði og Gaui eru þarna og það er alltaf gaman að hafa Íslendinga með sér,“ sagði handknattleiksmaðurinn Teitur Örn Einarsson í samtali við Morgunblaðið

„Mér líður mjög vel. Ég er mjög spenntur fyrir næsta tímabili. Elliði og Gaui eru þarna og það er alltaf gaman að hafa Íslendinga með sér,“ sagði handknattleiksmaðurinn Teitur Örn Einarsson í samtali við Morgunblaðið. Hann gengur til liðs við Íslendingalið Gummersbach frá Flensburg að loknu yfirstandandi tímabili og skrifar undir tveggja ára samning. Elliði Snær Viðarsson er einn lykilmanna Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. » 22