Patrik Atlason, betur þekktur sem prettyboitjokko gaf út nýtt lag fyrir jólin. Patrik var gestur Kristínar og Þórs í Ísland vaknar í skemmtilegu viðtali sem lauk svo með spilun á laginu. Patrik segir móður sína hafa ýtt á hann að gera jólalag

Patrik Atlason, betur þekktur sem prettyboitjokko gaf út nýtt lag fyrir jólin. Patrik var gestur Kristínar og Þórs í Ísland vaknar í skemmtilegu viðtali sem lauk svo með spilun á laginu. Patrik segir móður sína hafa ýtt á hann að gera jólalag. „Mamma var að ýta á mig endalaust að gera jólalag. Hún sagði það yrði annars ekkert að gera hjá mér í desember ef ég gerði ekki jólalag,“ segir Patrik og segir gerð lagsins hafa gengið hratt og vel fyrir sig. Lagið heitir prettyboi um jólin og var eitt vinsælasta jólalag landsins í desember. Lestu meira á K100.is.