Tvær plötur Íslendinga náðu inn á lista The New York Times yfir bestu klassísku plötur ársins 2023. Annars vegar er þar að finna plötuna Archora/Aion með verkum Önnu Þorvaldsdóttur í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra SÍ

Tvær plötur Íslendinga náðu inn á lista The New York Times yfir bestu klassísku plötur ársins 2023. Annars vegar er þar að finna plötuna Archora/Aion með verkum Önnu Þorvaldsdóttur í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra SÍ. Platan var gefin út hjá Sono Luminus. Hins vegar er á listanum plata Víkings Heiðars Ólafssonar með Goldberg-tilbrigðunum eftir Bach sem hann gaf út hjá Deutsche Grammophon.