Handknattleiksmaðurinn Janus Daði Smárason gengur í raðir ungverska stórliðsins Pick Szeged næsta sumar, en hann gerði tveggja ára samning við félagið á Þorláksmessu. Janus klárar tímabilið með Magdeburg í Þýskalandi, þar sem hann hefur leikið vel undanfarna mánuði
Handknattleiksmaðurinn Janus Daði Smárason gengur í raðir ungverska stórliðsins Pick Szeged næsta sumar, en hann gerði tveggja ára samning við félagið á Þorláksmessu. Janus klárar tímabilið með Magdeburg í Þýskalandi, þar sem hann hefur leikið vel undanfarna mánuði. Þar á undan var hann hjá Kolstad í Noregi. Janus hefur leyst Gísla Þorgeir Kristjánsson af hólmi hjá Magdeburg, en Gísli er að jafna sig á axlarmeiðslum.